Óska eftir aðstoð frá bæjarbúum um nöfn á nýjum götum á Sementsreitnum

Mikil uppbygging er fyrirhuguð á Sementsreitnum á næstu misserum. Finna þarf nöfn nýjar götur á þeim svæðum sem verða byggð upp á næstu árum.

Akraneskaupstaður sendi nýverið frá sér frétt þess efnis að leitað sé eftir aðstoð frá íbúum Akraness með að velja gatnaheiti á Sementsreitnum.

Um er að ræða 5 gatnaheiti en kosningin er í 2 liðum.

Annars vegar er kosið um gatnaheiti á götu sem á mynd er titluð Gata A á mynd og svo annars vegar er kosið um gatnaheiti á hinum 4 götunum saman, en þar er kosið um þemu.

Tillögur að gatnaheitum fyrir götu A:

Ástarbraut
Sementsbraut
Skerjabraut
Stórabryggja
Sjávarbryggja
Sjávarbraut
Baldursbraut

Tillögur um þemu að gatnaheitum fyrir götur B, C, D og E eru:

SkeljaströndKlettaströndSandströndLeiruströndKennileiti um fjörusgerðir við Akranes
SandabakkiSmiðjubakkiFaxabakkiLangibakkiVísun í bakka
LitlabryggjaBátabryggjaSementsbryggjaSkútubryggjaVísun í bryggju sem byggð er við sjó
SjávarblærSjávaraldaSjávarsýnSjávarströndVísun í sjó
FreyjugataÓðinsgataSkírnisgataSleipnisgataVísun í eldri götunöfn á Akranesi

Smelltu hér til að kjósa: