Stefnt að niðurrifi á fjórum mannvirkjum Akraneskaupstaðar á árinu 2022

Stefnt er að því að rífa fjögur mannvirki sem er í eigu Akraneskaupstaðar á þessu ári.

Þetta kemur fram í fundargerð skipulags – og umhverfisráðs.

Þar kemur fram að ráðið leggi það til við bæjarráða að gert verði ráð fyrir kostnaði við niðurrifið í uppfærðri fjárfestingaráætlun fyrir árið 2022.

Húsin eða mannvirkin sem um ræðir eru við Dalbraut 8 og 10, en þau hús hýstu áður starfssemi Fjöliðjunnar og Orkuveitunnar.

Einnig er gert ráð fyrir að rífa húsið við Suðurgötu 108 og einnig húsið við Suðurgötu 124.

Dalbraut 8 – mynd/ja.is
Dalbraut 10 – mynd/ja.is
Suðurgata 124 er til vinstri. Mynd. ja.is
Suðurgata 108. Mynd/ja.is