Spennan magnast í Blikksmiðju Guðmundar fyrir Öskudeginum 2022

Blikksmiðja Guðmundar hefur á undanförnum árum verið einn vinsælasti og heitasti staðurinn hjá yngri kynslóðinni á Akranesi á Öskudaginn.

Þar á bæ hafa starfsmenn tekið vel á móti börnum á þessum hátíðisdegi og í ár verður engin breyting þar á. Öskudagurinn er á miðvikudaginn í næstu viku, 2. mars.

Emil Sævarsson framkvæmdastjóri Blikksmiðju Guðmundar segir í samtali við Skagafréttir að mikil tilhlökkun ríki hjá starfsfólki fyrir þessum degi.

„Við ætlum að hafa söngvakeppni líkt og á undanförnum árum og einnig verða veitt verðlaun fyrir flottasta „heimagerða“ búninginn. Við viljum sjá sem flesta á þessum degi en það verður opið frá 10-15. Fyrir okkur hér á verkstæðinu er skemmtilegt að hafa tök á því að opna aðeins inn til okkar – og leyfa krökkunum að sjá verkstæðið í leiðinni. Sóttvarnir verða í toppstandi og við pössum upp á að allir spritti hendur og slíkt áður en þeir koma inn,“ segir Emil.

Eins og áður segir eru ýmsar keppnir í gangi hjá Blikksmiðju Guðmundar á þessum degi og í verðlaun eru inneignir á veitingastöðum á Akranesi.

http://localhost:8888/skagafrettir/2017/03/06/gledin-vid-vold-i-blikkinu-a-oskudaginn/