Myndband: Fastefli hóf framkvæmdir á Sementsreitnum í dag með formlegum hætti

Í dag hófst uppbygging að nýju á Sementsreitnum þar sem að Fastefli ehf. er með byggingarétt á allt að 115 íbúðum á 6 lóðum.

Um er að ræða fyrsta áfanga í uppbyggingu á svæðinu en á næstu misserum verða 300 íbúðir reistar til viðbótar á svæðinu.

Skagamaðurinn Óli Valur Steindórsson stjórnarformaður Fasteflis og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness tóku til máls að viðstöddu fjölmenni í þokkalegu veðri.

Hér má sjá myndband af því sem fram fór í dag.

http://localhost:8888/skagafrettir/2021/12/18/milli-fjalls-og-fjoru-sjadu-hvernig-fyrsti-hluti-sementsreitsins-mun-lita-ut/