13 mánaða gömul börn á Akranesi fá pláss á leikskóla í haust – nýr skóli gjörbreytir aðstöðu nemenda og starfsfólks

Nú í haust, 2022, býðst börnum á Akranesi fæddum út júlímánuð 2021 leikskólapláss. Þetta kemur fram í fundargerð skóla – og frístundaráðs Akraness.

Í lok mars 2022 fer fram innritun í leikskóla á Akranesi fyrir starfsárið 2022 – 2023.

Nýr leikskóli við Asparskóga verður tekin í notkun haustið 2022 og mun mannvirkið gjörbreyta allri aðstöðu á Akranesi fyrir nemendur á leikskólanum og einnig hjá starfsfólkinu.

Í fundargerð ráðsins segir að undanfarin fjögur ár hefur skóla-og frístundaráð lagt mikla áherslu á að bæta aðstæður barna og fjölskyldna þeirra með tilliti til daggæslumála.

Ráðist hefur verið í byggingu nýs glæsilegs sex deilda leikskóla við Asparskóga sem verður tekinn í notkun í haust þegar leikskólinn Garðasel flytur starfsemi sína. Með innkomu nýs leikskóla skapast tækifæri til þess að stórbæta vinnuaðstæður bæði barna og starfsmanna á leikskólum bæjarins.

Nú í haust býðst börnum fæddum út júlímánuð 2021 leikskólapláss.

Yngstu börnin sem byrja á leikskólum Akraneskausptaðar í haust verða 13 mánaða.

Ef frekari tafir verða á byggingu leikskólans við Asparskóga er búið að tryggja leikskólastarfinu annað hentugt húsnæði þar til leikskólinn verður tekinn í notkun.