Vilhjálmur kjörinn formaður SGS sem er fjölmennasta landssamband launafólks

Skagamaðurinn Vilhjálmur Birgisson var í dag kjörinn sem formaður Starfsgreinasambandsins.

Vilhjálmur hlaut sjötíu atkvæði (53,85 prósent) og Þórarinn G. Sverrisson sextíu atkvæði (46,15 prósent). Alls greiddu 130 manns atkvæði í formannskjörinu. Þetta kemur fram á visir.is.

Þar er birt viðtal við Vilhjálm sem mun gegna formennsku í Verkalýðsfélagi Akraness samhliða formennsku í SGS.

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) er fjölmennasta landssamband launafólks á Íslandi og stærsta landssambandið innan ASÍ, með samtals um 72.000 félagsmenn. Meginhlutverk SGS er að sameina verkalýðsfélög í baráttunni fyrir bættum kjörum, standa vörð um áunnin réttindi, vera leiðandi afl innan verkalýðshreyfingarinnar og vettvangur umræðu um þróun samfélagsins í þágu launafólks.

Starfsgreinasambandið var stofnað 13. október árið 2000 við samruna Verkamannasambands Íslands, sem stofnað var árið 1964, Þjónustusambands Íslands, vegna starfsfólks í veitinga- og gistihúsum, sem stofnað var árið 1972 og Landssambands iðnverkafólks frá 1973. Stofnfélög Starfsgreinasambandsins voru 50 að tölu en í dag eru aðildarfélögin 19 talsins.

„Framundan eru bara kjarasamningar á hinum íslenska vinnumarkaði. Þeir eru lausir í október og liggur fyrir að við munum þurfa að einhenda okkur í það að láta lágmarkslaun á Íslandi duga fyrir nauðþurftum frá mánuði til mánaðar,“ segir Vilhjálmur í samtali við fréttastofu.

„Því miður er staðan þannig í dag að það gerir það ekki. Það er að mínu áliti Samtökum atvinnulífsins, okkur í verkalýðshreyfingunni og samfélaginu öllu til ævarandi skammar að við séum með laun sem duga ekki fyrir nauðþurftum frá mánuði til mánaðar.“

Aðspurður um umboð sitt að loknum kosningum segir Vilhjálmur:

„Þetta er einfaldlega þannig að þegar um fulltrúalýðræði er að ræða getur farið svo. Þetta er sterkara umboð en ég átti von á. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að hreyfingin hefur verið dálítið klofin. En fulltrúalýðræðið virkar svona. Umboðið tel ég vera ótvírætt. Við skulum ekki gleyma því að Starfsgreinasamband Íslands er stærsta landsambandið innan Alþýðusambandsins, með 72 þúsund félagsmenn á bak við sig. Þetta afl er sterkt og með samstilltu átaki eigum við að geta gert ótrúlega marga jákvæða hluti fyrir okkar félagsmenn,“ segir Vilhjálmur í viðtalinu.

http://localhost:8888/skagafrettir/2022/03/04/vilhjalmur-saekist-eftir-formennsku-hja-sgs-sem-er-med-72-thusund-felagsmenn/