Valgarður, Jónína og Kristinn skipa efstu sæti framboðslista Samfylkingarinnar

Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akranesi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2022 var kynntur í kvöld á félagsfundi. Kosningarnar fara fram 14. maí og hafa þrjú framboð nú lagt fram lista á Akranesi.

Frá vinstri: Valgarður Lyngdal Jónsson, Jónína M. Sigmundsdóttir, Kristinn Hallur Sveinsson og Anna Sólveig Smáradóttir. Mynd/Jónas

Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni kemur eftirfarandi fram.

Á framboðslistanum okkar er fjölbreyttur hópur fólks sem býr að alls konar þekkingu og reynslu af lífinu og tilverunni, hópur sem endurspeglar raunverulega breidd samfélagsins. Við erum öll venjulegt fólk um leið og við erum óvenjuleg hvert um sig.
Við erum stolt af því hvernig bæjarfélaginu okkar hefur verið stjórnað síðustu árin og við viljum halda áfram. Við viljum áfram forgangsraða í þágu þjónustu við alla íbúa bæjarins, ekki síst barna, fjölskyldna og allra þeirra sem reiða sig á fjölbreytta og vandaða þjónustu sveitarfélagsins. Við viljum halda áfram að byggja upp skóla- og íþróttamannvirki því þannig fjárfestum við ekki aðeins í húsum heldur einnig í lífsgæðum.
Við trúum á félagslegar lausnir og samábyrgð en vitum um leið að gróskumikið atvinnulíf er grunnurinn að góðri velferðarþjónustu. Við viljum að gildi jafnaðarmanna; frelsi, jafnrétti og samstaða, verði ávallt höfð að leiðarljósi við stjórn bæjarfélagsins okkar.

Framboðslisti okkar er þannig skipaður:

1. Valgarður Lyngdal Jónsson 49 ára grunnskólakennari og bæjarfulltrúi

2. Jónína M. Sigmundsdóttir 43 ára starfsmaður fíkniteymis Reykjavíkur og sjúkraliðanemi

3. Kristinn Hallur Sveinsson 49 ára landfræðingur og bæjarfulltrúi

4. Anna Sólveig Smáradóttir 44 ára sjúkraþjálfari

5. Björn Guðmundsson 65 ára húsasmiður

6. Sigrún Ríkharðsdóttir 59 ára tómstunda- og félagsmálafræðingur/náms- og starfsráðgjafi

7. Benedikt Júlíus Steingrímsson 19 ára rafvirki

8. Guðríður Sigurjónsdóttir 52 ára leikskólakennari

9. Auðun Ingi Hrólfsson 23 ára starfsmaður félagsmiðstöðvar og nemi

10. Bára Daðadóttir 39 ára félagsráðgjafi

11. Uchechukwu Eze 50 ára verkamaður

12. Margrét Helga Ísaksen 26 ára hjúkrunarfræðinemi

13. Pétur Ingi Jónsson 32 ára lífeindafræðingur

14. Þóranna Hildur Kjartansdóttir 49 ára sjúkraliði/ lyfjatæknir/förðunarfræðingur

15. Júlíus Már Þórarinsson 77 ára tæknifræðingur

16. Erna Björg Guðlaugsdóttir 57 ára kennari/náms og starfsráðgjafi

17. Ágústa Friðriksdóttir 56 ára ljósmyndari/ökukennari/hafnargæslumaður

18. Guðjón S. Brjánsson 67 ára fyrrverandi Alþingismaður

http://localhost:8888/skagafrettir/2022/03/09/ragnar-liv-saedis-og-magni-skipa-efstu-saetin-a-lista-framsoknar-og-frjalsra/
http://localhost:8888/skagafrettir/2022/03/01/miklar-breytingar-a-frambodslista-sjalfstaedisflokksins-lif-nyr-oddviti/