Kosningar 2022: Lokatölur hafa verið birtar á Akranesi – meirihlutinn heldur velli



Lokatölur hafa nú verið birtar í bæjarstjórnarkosningunum á Akranesi 2022.

Á kjörskrá voru 5.691 og var kjörsókn 62,5% sem er talsvert minni kjörsókn en fyrir fjórum árum þegar kjörsóknin var um 70%. Alls greiddu 3.564 atkvæði í þessum kosningum á Akranesi.

Framsókn og frjálsir bætti töluvert við fylgi sitt frá síðustu kosningum og fékk flokkurinn 1.208 atkvæði eða 36,1 % og þrjá bæjarfulltrúa. Flokkurinn bætti við sig einum bæjarfulltrúa.

Sjálfstæðisflokkurinn tapaði einum bæjarfulltrúa og er með þrjá bæjarfulltrúa. Flokkurinn fékk flest atkvæði af framboðunum þremur, eða 1.223 atkvæði og 36,1% atkvæða.

Samfylkingin fékk 959 atkvæði og 28,3% atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa kjörna.

Auðir og ógildir atkvæðaseðlar voru alls 174, eða tæplega 5% greiddra atkvæða.

Bæjarstjórn Akraness verður því þannig skipuð á næsta kjörtímabili.

Framsóknarflokkurinn og frjálsir:
Ragnar Baldvin Sæmundsson, Liv Ase Skarstad, Sædís Alexía Sigurmundsdóttir.

Sjálfstæðisflokkurinn:
Líf Lárusdóttir, Einar Brandsson, Guðm. Ingþór Guðjónsson.

Samfylkingin:
Valgarður Lyngdal Jónsson, Jónína Margrét Sigurmundsdóttir, Kristinn Hallur Sveinsson.

http://localhost:8888/skagafrettir/2022/04/18/toluverdar-breytingar-a-frambodslistum-flokkanna-thriggja-sem-bjoda-fram-a-akranesi-2022/