ÍA komst áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarkeppni karla eftir hörkuleik gegn Sindra



ÍA tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu með 5-3 sigri gegn Sindra á Höfn í Hornafirði. Þetta er í fyrsta sinn sem liðin mætast í mótsleik utanhúss

Heimamenn, sem leika í 3. deild á Íslandsmótinu eða fjórðu efstu deild, komust yfir á 9. mínútu með marki frá Abdul Bangura.

Steinar Þorsteinsson jafnaði metin fyrir ÍA undir lok fyrri hálfleiks og staðan var jöfn í hálfleik. Sorie Barrie kom Sindra yfir á ný með marki á 52. mínútu og Gunnar Orri Aðalsteinsson, leikmaður Sindra, setti boltann í eigið mark tíu mínútum síðar og jafnaði metin fyrir ÍA.

Kaj Leo Í Bartalstovu kom ÍA í 3-2 á 67. mínútu og Guðmundur Tyrfingsson bætti við fjórða markinu á 79. mínútu, staðan 4-2 fyrir ÍA.

Ivan Eres hleypti spennu í leikinn tveimur mínútum síðar með þriðja marki Sindra en Gísli Laxdal Unnarsson tryggði sigurinn hjá ÍA með fimmta marki liðsins fjórum mínútum fyrir leikslok.

Eins og áður segir er þetta í fyrsta sinn sem liðin eigast við utanhúss en eina viðureign félaganna fyrir leikinn í kvöld var á Íslandsmótinu innanhúss árið 2004 þar sem að ÍA sigraði 5-2.

Sindri er í fjórðu efstu deild, 3. deild, en liðið mætti Kára nýverið þar sem að leikurinn endaði með jafntefli 1-1. Káramenn mæta stórliði FH á morgun, miðvikudag á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.

Karlalið ÍA hefur sigrað 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ en KR er sigursælasta liðið í keppninni með 14 titla og Valur er í öðru sæti með 11 titla.

32-liða úrslit

Þriðjudagurinn 24. maí

Höttur/Huginn – Ægir á Fellavelli kl. 17:00

Sindri – ÍA á Sindravöllum kl. 18:00

Selfoss – Magni á JÁVERK-vellinum kl. 18:00

Vestri – Afturelding á Olísvellinum kl. 18:00

HK – Grótta í Kórnum kl. 19:15

Grindavík – ÍR á Grindavíkurvelli kl. 19:15

Hvíti Riddarinn – Kórdrengir á Malbikstöðinni að Varmá kl. 19:15

Dalvík/Reynir – Þór á Dalvíkurvelli kl. 19:45

Miðvikudagurinn 25. maí

Fylkir – ÍBV á Würth vellinum kl. 18:00

FH – Kári á Kaplakrikavelli kl. 19:15

Keflavík – Njarðvík á HS Orku vellinum kl. 19:15

Stjarnan – KR á Samsungvellinum kl. 19:45

Fimmtudagurinn 26. maí

Fram – Leiknir R. á Framvelli kl. 14:00

KA – Reynir S. á KA-velli kl. 16:00

Haukar – Víkingur R. á Ásvöllum kl. 19:15

Breiðablik – Valur á Kópavogsvelli kl. 19:45