Védís Agla með bestan árangur á stúdentsprófi – 63 nemendur brautskráðir frá FVA



Alls voru 63 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands við hátíðlega athöfn sem fram fór s.l. föstudag í salarkynnum FVA á Akranesi.

Nemendurnir voru brautskráðir af 8 mismunandi námsbrautum: 8 af félagsfræðabraut, 13 af náttúrufræðabraut, 14 af opinni stúdentsbraut, tveir úr rafvirkjun, þrír af starfsbraut, fjórir úr vélvirkjun og 16 húsasmiðir, en það er næststærsti úrskriftarhópur af húsasmíðabraut í sögu skólans. Auk þess luku fimm nemendur viðbótarnámi við iðngrein til stúdentsprófs.

Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu FVA.

Dröfn Viðarsdóttir, aðstoðarskólameistari, setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari, flutti ávarp. Björn Viktor Viktorsson, nýstúdent, flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og Hjálmur Dór Hjálmsson flutti ávarp fyrir hönd 20 ára stúdenta.

Tónlistaratriði voru á dagskrá þar sem að Guðrún Karitas Guðmundsdóttir söng lagið Black Coffee eftir Burke og Webster og Marta Lind Jörgensdóttir Nilsson flutti lagið Can´t help lovin´ that man eftir Jerome og Hammerstein.

Eftirtaldir nemendur fengu verðlaun og viðurkenningar, t.a.m. fyrir ágætan námsárangur og störf að félags- og menningarmálum. Nöfn þeirra sem gefa verðlaun eru innan sviga:

  • Amanda Ösp Kolbeinsdóttir fyrir góðan námsárangur í spænsku (FVA)
  • Andrea Ósk Hermóðsdóttir fyrir góðan námsárangur í Ensku og þýsku (Akraborg), íslensku (FVA) og Líffræði og lífeðlisfræði (Elkem)
  • Arndís Lilja Eggertsdóttir fyrir góðan námsárangur í líffræði og lífeðlisfræði (Norðurál)
  • Ástdís Birta Björgvinsdóttir fyrir góðan námsárangur í þýsku (Þýska sendiráðið) og íslensku (FVA)
  • Baldur Þór Bjarnason fyrir góðan námsárangur í tréiðngreinum (Trésmiðjan Akur)
  • Berglind Björgvinsdóttir fyrir góðan námsárangur í tréiðngreinum (BM- Vallá)
  • Birkir Freyr Björgvinsson fyrir góðan námsárangur í tréiðngreinum (SF smiðir)
  • Birta Sif Sveinsdóttir fyrir góðan námsárangur í líffræði og lífeðlisfræði (Sjóvá)
  • Björn Viktor Viktorsson fyrir góðan námsárangur í samfélagsgreinum (Tölvuþjónustan) og fyrir framlag sitt til Félagsstarfa (Minningasjóður Karls Kristins Kristjánssonar)
  • Breki Þór Hermannsson fyrir góðan námsárangur í spænsku (Rótarýklúbbur Akraness)
  • Guðni Rafn Benediktsson fyrir þrautseigju í námi (Minningarsjóður Lovísu Hrundar Svavarsdóttur)
  • Guðrún Karitas Guðmundsdóttir fyrir góðan námsárangur í ensku (FVA)
  • Hafsteinn Ingi Gunnarsson fyrir góðan námsárangur í tréiðngreinum (Sjammi) og fyrir að ná bestum námsárangri í iðngreinum (Katla Hallsdóttir hárgreiðslumeistari)
  • Helena Rós Sævarsdóttir fyrir góðan námsárangur í Uppeldisfræði (Penninn)
  • Helgi Rafn Bergþórsson fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningasjóður Karls Kristins Kristjánssonar)
  • Hrafnhildur Jökulsdóttir fyrir góðan námsárangur í íslensku (FVA)
  • Ingimar Elfar Ágústsson fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningasjóður Karls Kristins Kristjánssonar)
  • Kristrún Bára Guðjónsdóttir fyrir góðan námsárangur í líffæra og lífeðlisfræði (Sjóvá) og fyrir framlag sitt til  í félagsstarfa (Minningasjóður Karls Kristins Kristjánssonar)
  • Lilja Björg Ólafsdóttir fyrir góðan námsárangur í ensku og þýsku (FVA), íþrótta og heilsugreinum (FVA), íslensku og samfélagsgreinum (Landsbankinn)
  • Mariyam Anwar Nassar hlýtur hvatningverðlaun til frekar náms (Zonta klúbburinn)
  • Marta Lind Jörgensdóttir Nilsson fyrir framlag sitt til  í félagsstarfa (Minningasjóður Karls Kristins Kristjánssonar)
  • Paula Gaciarska fyrir góðan námsárangur í íþrótta og heilsugreinum (FVA), tungumálum (Landsbankinn), íslensku og samfélagsgreinum (Verkalýðsfélag Akraness). Einnig hlaut hún Menntaverðlaun Háskóla Íslands sem veitt eru þeim nemendum sem sýna framúrskarandi dugnað í námi.
  • Salka Brynjarsdóttir fyrir góðan námsárangur í þýsku (Þýska sendiráðið), íslensku og samfélagsgreinum (Soroptimistaklúbburinn) og fyrir framlag sitt til  í félagsstarfa (Minningasjóður Karls Kristins Kristjánssonar)
  • Sigrún Freyja Hrannarsdóttir fyrir góðan námsárangur í íslensku (FVA) og líffæra og lífeðlisfræði (Íslandsbanki)
  • Enrique Snær Llorens Sigurðsson fyrir þrautseigju í námi (Minningarsjóður Lovísu Hrundar)
  • Sólrún Lilja Finnbogadóttir fyrir góðan námsárangur í þýsku (FVA), íþrótta og heilsugreinum (Húsasmiðjan), íslensku og samfélagsgreinum (Íslandsbanki)
  • Védís Agla Reynisdóttir fyrir góðan námsárangur í raungreinum og stærðfræði (Norðurál), tungumálum (FVA), íslensku (FVA) og efnafræði (Efnafræðingafélag Íslands). Einnig hlaut hún Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík sem veitt eru nemanda sem nær afbragðsárangri í raungreinum.

Védís Agla Reynisdóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan heildarárangur á stúdentsprófi með einkunninna 9,66.
Aníta Ólafsdóttir hlaut viðurkenningu úr Minningarsjóði Guðmundar P Bjarnasonar frá Sýruparti, en þau eru veitt efnilegum nemendum með hvatningu til frekara náms.
Védís Agla Reynisdóttir og Paula Gaciarska og hlutu námsstyrk frá Akraneskaupstað fyrir góðan námsárangur. Með þeim á myndinni eru Dröfn, Steinunn Inga og Elsa Lára Arnardóttir frá Akraneskaupstað.
Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari.