Stefán Gísli Íslandsmeistari í haglabyssugreininni skeet eftir bráðabana



Íslandsmeistaramótið í haglabyssugreininni Skeet fór fram á skotvelli Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi um s.l. helgi.

Í karlaflokki varð Stefán Gísli Örlygsson úr Skotfélagi Akraness Íslandsmeistari eftir spennandi viðureign við Hákon Þ. Svavarsson nýkrýndan Norurlandameistara. Þeir enduðu á bráðabana þar sem Stefán skaut einni dúfu meira en Hákon. Í þriðja sæti varð Guðlaugur Bragi Magnússon úr Skotfélagi Akureyrar. Frá þessu er greint á vef Skotíþróttasambands Íslands.

Í kvennaflokki varð Íslandsmeistari María Rós Arnfinnsdóttir úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar, Helga Jóhannsdóttir úr sama félagi varð önnur, en hún jafnaði eigið Íslandsmet í undankeppninni. Í þriðja sæti hafnaði svo Dagný Huld Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur. Daníel Logi Heiðarsson úr Skotfélagi Akureyrar varð Íslandsmeistari unglinga. Í liðakeppninni sigraði sveit Skotíþróttafélags Suðurlands, en sveitir Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar hlutu annað og þriðja sætið. Nánar á úrslitasíðunni, www.sti.is