Viðamiklar breytingar um flokkun sorps taka gildi um næstu áramót



TIl stendur að breyta fyrirkomulagi á sorptunnum og flokkun á heimilum á Akranesi. Breytingin tekur gildi um næstu áramót en þá taka gildi ný lög þar sem að skylt verður að flokka sorp á heimilum í sex flokka – segir í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar.

Flokkarnir sem um ræðir eru:

Málmar
Gler
Plast
Pappi/pappír
Lífrænt
Blandað sorp

Við þessa breytingu mun fyrirkomulag sorpíláta breytast til að mæta þeim kröfum og er þeim sem íhuga byggingu skýla fyrir sorpílát við heimili sín bent á að hyggilegt væri að fresta þeirri framkvæmd þar til fyrir liggur hvernig sorphirðumálum verður háttað eftir að nýjar flokkunarreglur hafa tekið gildi.

Málmum og gleri verður hægt að skila af sér á grenndarstöðvum sem er verið að útfæra og finna staðsetningar fyrir.

Plast, pappi/pappír, blandað sorp og lífrænt verður safnað í sorpílát við hvert heimili og er verið að útfæra þá lausn – segir í tilkynningu Akraneskaupstaðar.