ÍA með fjóra keppendur á NM í Garpaflokki í sundi í Færeyjum



Fjórir keppendur frá Sundfélagi Akraness taka þátt á Norðurlandameistaramóti Garpa sem fram fer næstu daga í Þórshöfn í Færeyjum.

Mótið hófst í dag í föstudaginn 30. september. Alls eru 150 keppendur á mótinu og eru þeir á aldrinum 25-80 ára

Silvia Llorens Izaguirren, Arnheiður Hjörleifsdóttir, Kristín Minney Pétursdóttir og Anna Leif Elídóttir eru á meðal keppenda en alls eru 40 keppendur frá Íslandi – og koma þeir frá fjórum félögum.

Keppt er í 25 metra innilaug í Þórshöfn og fer keppnin fram föstudag og laugardag.

Kristín Minney keppti nýverið á Evrópumeistaramótinu í Garpaflokki eins og fram kemur í þessari greint á skagafrettir.is

http://localhost:8888/skagafrettir/2022/09/07/kristin-minney-nadi-markmidum-sinum-a-evropumeistaramoti-garpa-i-rom/