Jóhann Ársæll náði flottum árangri á boðsmóti í keilu á eyjunni Möltu



Skagamaðurinn Jóhann Ársæll Atlason úr ÍA var í íslenska landsliðinu sem tók þátt í boðsmóti í keilu sem fram fór nýverið á Möltu. Jóhann endaði í áttunda sæti í einstaklingskeppninni, hann var í sigurliði í tvímenningskeppni – og liðakeppninni.

Auk Jóhanns Ársæls tóku Arnar Davíð Jónsson KFR/Höganas, Elva Rós Hannesdóttir KFR og Katrín Fjóla Bragadóttir KFR tóku einnig þátt í einstaklingskeppni, tvímenning og liðakeppni.

Alls fengu íslensku keppendurnir þrenn gullverðlaun, þrenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun. Mótið var prufumót fyrir Smáþjóðaleikana sem fram fer á næsta ári.

Hér fyrir neðan er tilkynning frá Keilusambandi Íslands vegna mótsins:

Einstaklings:

Mótið byrjaði með einstaklingskeppni og voru bæði kyn að spila á sama tíma. Á mótinu voru einungis þjóðir sem keppa á smáþjóðaleikunum og því mátti búast við góðum úrslitum. Arnar Davíð lenti í öðru sæti í karlaflokki á eftir Dennis Mercieca frá Möltu, Arnar var aðeins þremur pinnum frá Mercieca. Jóhann Ársæll var í því áttunda. Það voru enginn úrslit á mótinu og voru því 6 leikir í gildi. Í kvennaflokki lenti Katrín Fjóla líka í öðru sæti á eftir henni Cynthiu Duca frá Möltu en þar munaði 76 pinnum. Elva Rós var í því fimmta.

Arnar 201-279-254-254-213-211 = 1412
Elva 172-180-158-159-158-200 = 1027
Jóhann 167-198-170-180-204-247 = 1166
Katrín 188-210-169-179-198-200 = 1144

Tvímenningur:

Tveimur dögum seinna hefst tvímenningur hjá okkar fólki. Það byrjaði virkilega vel hjá strákunum og voru þeir á toppnum lengi vel. Arnar og Jóhann náðu að sigra tvímenning og voru þeir ekkert að láta hina ná sér og voru þeir alveg 101 pinna fyrir ofan San Marino, sem náði að tylla sér í annað sæti. Malta var í því þriðja. Hjá stelpunum var einnig góð byrjun en svo hallaði aðeins undan fæti í lokinn en Elva og Katrín náðu að hanga í öðru sætinu og voru þær vel á eftir Möltu. Kýpur var í því þriðja.

Arnar 249-247-265-238-201-175 = 1375
Jóhann 235-193-227-201-164-159 = 1179
Samtals 484-440-492-439-365-334 = 2554
Elva 186-171-160-137-165-173 = 992
Katrín 183-191-211-158-173-176 = 1092
Samtals 369-362-371-295-338-349 = 2084

Liðakeppni:

Í liðakeppni eru kynin saman og eru spilaðir 3 leikir á hvern leikmann. Liðið var vel peppað fyrir keppninni og byrjaði svakalega vel. Þau voru í fyrsta sæti eftir 2 leiki og meira en 100 pinnum fyrir ofan næsta lið og var gull í vændum. Þau náðu svo gullinu eftir smá erfiðan þriðja leik og unnu þau Möltu með 22 pinnum og var þá Kýpur í því þriðja. GULL Á ÍSLAND

Arnar 185-192-220 = 597
Elva 258-200-180 = 638
Jóhann 288-225-199 = 712
Katrín 146-220-168 = 534
Samtals 877-837-767 = 2481
All-Event:

Það voru líka veitt verðlaunapeningar fyrir heildarskor úr öllum keppnum.
Þar varð Arnar Davíð á toppnum karlamegin og Jóhann Ársæll í því fjórða.
Kvennamegin var Katrín Fjóla í þriðja sætinu og Elva í því fjórða.

Arnar 1412-1375-597 = 1. sæti
Jóhann 1166-1179-712 = 4. sæti
Katrín 1144-1092-534= 3. Sæti
Elva 1027- 992-638 = 4. Sæti

3 gull, 3 silfur og 1 brons fara þá heim með Íslendingum eftir þetta bráðskemmtilega mót í Möltu. Eins og sagt var áður þá var þetta prufumót fyrir smáþjóðaleikana og viljum við væntanlega öll að keila verði hluti af því móti á næsta ári. Mattias Möller landsliðsþjálfari er hæstánægður með fólkið sitt sem fer glatt heim á klakann, nema kannski Arnar, en hann fer væntanlega heim til Höganas að undirbúa sig fyrir ECC sem fer fram í Olumouc í Tékklandi seinna í þessum mánuði.