Akrasel fær tilnefningu í flokki framúrskarandi skólastarfs eða menntunarumbóta



Íslensku menntaverðlaunin 2022 verða afhent á næstunni. Leikskólinn Akrasel hefur verið tilnefndur í flokki framúrskarandi skólastarfs eða menntunarumbóta. Alls eru fjórir skólar tilnefndir í þessum flokki þar sem verið að verðlauna þann skóla eða menntastofnun sem þykir hafa skarað fram úr í starfi sínu og stuðlað að umbótum í menntamálum. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Leikskólinn Akrasel hefur frá stofnun 2008 lagt mikla áherslu á umhverfismennt og heilsueflingu með sjálfbærni að leiðarljósi og er tilnefndur fyrir markvissa, skapandi og faglega þróunarvinnu starfsfólksins með þessi gildi i fyrirrúmi.

Í tilnefningunni er m.a. eftirfarandi umsögn um skólann:

„Á liðnu tímabili vann Akrasel mörg og krefjandi verkefni tengt sjálfbærni, ormarnir margfrægu, moltugerð og erlend samstarfsverkefni. Leikskólinn Akrasel hefur fundið samlegðaráhrif milli menntaumbótaverkefna og hefur hann síðustu ár verið að tengja Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna við starfið og kynnt Barnasáttmálann fyrir elsta árgangi leikskólans. Leikskólinn Akrasel flaggaði sínum fyrsta grænfána 2011. Árið 2022 tók skólinn á móti sjötta Grænfána Landverndar. Samhliða því hlaut skólinn einnig viðurkenningu sem UNESCO skóli, fyrstur leikskóla á Íslandi. Grænfána vinnan og umhverfismenntin er grunnurinn að öllu starfi leikskólans.“

Fyrr á þessu ári fékk Akrasel viðurkenningu sem Unesco leikskóli – fyrstur allra leikskóla á Íslandi – sjá frétt hér neðar.

http://localhost:8888/skagafrettir/2022/05/25/akrasel-er-fyrsti-unesco-leikskoli-islands-godur-og-fallegur-dagur-med-forseta-islands/