Nýnemar á rafiðndeild FVA fengu góða gjöf frá fræðslusetri rafiðnaðarins



Nýnemar sem stunda nám í rafiðndeildinni fengu góða gjöf á dögunum.

Rafmennt, sem er fræðslusetur rafiðnaðarins, gaf nemendunum vinnubuxur. Skagamaðurinn Guðmundur S. Jónsson sem er verkefnastjóri hjá Rafmennt afhenti gjöfina.

Í frétt á heimasíðu FVA kemur fram að gjöfin komi sér vel fyrir ungt fólk sem er að hefja sína vegferð þegar kemur á vinnumarkaðinn og er Rafmennt þakkað fyrir gjöfina.

Á myndinni eru nýnemar rafiðndeildarinnar haustið 2022 ásamt kennurum og Guðmundi. Neðsta röð talin frá vinstri eru: Gissur Snær Sigmundsson, Guðmann Magnússon, Berglind Huld Victorsdóttir, Kaleb Týr Shaddock, Þröstur Ben Björnsson og Armandas Jatautas. Önnur röð frá vinstri: Hrannar Birgir Einarsson, Konrad Gorajewski, Aron Benedikt Birgittuson, Vignir Gauti Guðjónsson, Guðbjarni Sigþórsson, Benedikt Ísar Björgvinsson, Sindri Már Einarsson og Davíð Reynir Steingrímsson kennari. Aftasta röð frá vinstri: Guðmundur S. Jónsson frá Rafmennt, Guðmundur Þór Þorsteinsson kennari, Arnbjörn Ingi Grétarsson, Hjörtur Hrafnsson, Viktor Daði Eggertsson, Jóel Duranona, Mateusz Kuptel, Alex Máni Heiðarsson og Alex Þór Einarsson.