Tímamótadagur hjá Skagafréttum – 2191 dagur

Fyrir 2191 dögum fór fréttavefurinn Skagafréttir í loftið. Það eru 72 mánuðir eða 6 ár.

Jákvæðar fréttir hefur frá upphafi verið rauði þráðurinn í fréttaumfjöllun Skagafrétta.

Lesendur hafa kunnað meta slíkar áherslur. Og með hverju árinu sem líður hefur lesendahópurinn stækkað jafnt og þétt.

Skagafréttir eru í dag mikilvægur þáttur í daglegu lífi mörg þúsund lesenda víðsvegar um veröldina.

Ný aðsóknarmet eru sett á hverju ári eins og sjá má hér fyrir neðan.

Fréttasafnið telur mörg þúsund fréttir, og fyrr á þessu ári var sett á laggirnar myndasafn Skagafrétta sem verður í framtíðinni ómetanleg heimild um mannlífið á Akranesi.

Viðtökur lesenda hafa frá fyrsta degi verið framar vonum. Við sem stöndum á bak við þetta verkefni erum þakklát fyrir stuðninginn. Markmiðið er að gera enn betur.

Þrátt fyrir góðar kveðjur og velvild þurfa staðarfréttamiðla á fjárhagslegum stuðningi nærsamfélagsins að halda. Frá íbúum, fyrirtækjum og stofnunum.

Það er einlæg ósk okkar hér á skagafrettir.is að enn fleiri sjái sér fært að taka þátt í uppbyggingunni með frjálsum framlögum, auglýsingum eða öðrum stuðningi.

Fjölmörg fyrirtæki hafa í gegnum tíðina staðið þétt við bakið á uppbyggingu Skagafrétta. Og á undanförnum mánuðum hafa dyggir lesendur gert slíkt hið sama.

Kærar þakkir fyrir stuðninginn og allar heimsóknirnar. Það er ómetanlegt.

Smelltu hér til að skoða valkostina til að styðja við bakið á skagafrettir.is.

Stærstu dagar Skagafrétta frá upphafi eru:

11. ágúst 2022 – 8.698 gestir
9. nóvember 2020 – 6.838 gestir
10. febrúar 2019 – 4.120 gestir
12. nóvember 2018 – 3.165 gestir
13. desember 2017 – 2997 gestir