Framtakssjóður fjárfestir fyrir milljarð kr. í Eðalfangi

Framtakssjóðurinn Horn IV fjárfestir í Eðalfangi – sem fyrirhugar mikinn vöxt á næstu árum. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Eðalfang er í grunninn tvö matvælafyrirtæki með áherslu á sjávarútveg; Eðalfiskur ehf. í Borgarnesi og Norðanfiskur ehf. á Akranesi.

Framtakssjóðurinn Horn IV slhf. fjárfestir í Eðalfangi og verður með kaupunum stærsti einstaki hluthafi félagsins.  Um er að ræða  útgáfu nýs hlutafjár en jafnframt leggja núverandi hluthafar félaginu til nýtt fjármagn en heildarfjármögnun er 1.000 milljónir króna. Fjármagnið sem kemur inn í félagið verður nýtt til fjárfestinga í tækjabúnaði og sjálfvirknivæðingu sem mun nýtast félaginu við uppbyggingu og eflingar á vinnslu til framleiðslu á laxi með áherslu á útflutning og til að fylgja eftir og efla sölu- og markaðsstarf á alþjóðlegum mörkuðum. 

Eðalfang er í grunninn tvö matvælafyrirtæki með áherslu á sjávarútveg; Eðalfiskur ehf. í Borgarnesi og Norðanfiskur ehf. á Akranesi.

Bæði fyrirtækin framleiða hágæða sjávarfang, hvort á sínu sviði. Eðalfiskur sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á úrvals ferskum, frystum, reyktum og gröfnum laxaafurðum þar sem stór hluti afurða fyrirtækisins er seldur á erlendum mörkuðum.

Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa á innanlandsmarkaði ásamt sölu neytendapakkninga í verslunum um land allt.

Fyrirtækin eru með 62 starfsmenn og viðskiptavini í 9 löndum.

Horn IV er framtakssjóður í rekstri Landsbréfa sem hóf starfsemi á síðasta ári og fjárfestir í óskráðum íslenskum fyrirtækjum. Sjóðurinn er 15 ma. kr. að stærð og eru kaupin þriðja fjárfesting sjóðsins en fjárfestingartímabil hans er til loka júlí árið 2025.

„Kaup Horns IV á kjölfestuhlut í Eðalfangi eru afar ánægjuleg og gefur okkur tækifæri til frekari vaxtar á komandi árum. Við erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð með söluaukningu undanfarið ár í Eðalfiski og Norðanfiski.  Með því fjármagni sem kemur inn í félagið verður okkur kleift að verða öflugir þátttakendur í næstu bylgju í sjávarútvegi á Íslandi sem er þegar hafin. Mikil tækifæri eru í verðmætasköpun með fullvinnslu á Íslandi til útflutnings í samvinnu við eldisfyrirtækin.  Á sama tíma að halda áfram að starfa sem stærsti dreifingaraðili fiskmetis á innanlandsmarkaði fremstu sjávarútvegsþjóðar í heimi“, segir Engilbert Hafsteinsson, stjórnarformaður Eðalfangs.

„Félagið er með skýra framtíðarsýn og stefnir á að verða leiðandi í fullvinnslu á laxaafurðum á Íslandi ásamt því að byggja upp öflugt sölunet á alþjóðlegum mörkuðum. Reynsla starfsfólks og núverandi eigenda, gæðavottuð vinnsla og sérstaða Íslands varðandi gæði afurða og lægra kolefnisfótspors mun nýtast vel í þeirri sókn sem félagið ætlar í á erlenda markaði.  Við höfum mikla trú á sóknartækifærum félagsins og teljum spennandi tíma vera fram undan og erum full tilhlökkunar að starfa með félaginu og starfsfólki þess við að nýta þau tækifæri,“ segja fjárfestingarstjórar Horns IV,

 

Akrar Consult og Logos voru ráðgjafar kaupanda og Arion banki og Nordik Legal voru ráðgjafar seljenda.

 

Frá vinstri: Berglind Halldórsdóttir, Steinar Helgason og Hermann M. Þórisson frá Horn IV. Engilbert Hafsteinsson, Kristján Baldvinsson og Gestur B. Gestsson frá Eðalfangi. Mynd/Aðsend.