Útboðsgögn um niðurrif á húsum í eigu Akraneskaupstaðar samþykkt

Á næstu mánuðum verða fjórar byggingar sem eru í eigu Akraneskaupstaðar rifnar niður og fjarlægðar. 

Stefnt er að því að eitt hús til viðbótar verði einnig rifið og fjarlægt  – svo framarlega sem að samkomulag náist við ríkið um rif á því húsi. 

Þetta kemur fram í fundargerð skipulags – og umhverfisráðs Akraness. 

Á síðasta fundi ráðsins voru útboðsgögn vegna niðurrifs á 

Suðurgötu 108, Suðurgötu 124, Dalbraut 8 og Dalbraut 10 samþykkt. 

Öll þessi hús eru talin ónýt – m.a.. vegna loftgæðavandamála.

Suðurgata 108 var um langan tíma húsnæði sem AA samtökin voru með sína starfsemi og ljósmyndaklúbburinn Vitinn. 

Höfuðustöðvar Veitna á Akranesi voru áður við Dalbraut 10 – sem á sínum tíma var húsnæði Rafveitu Akraness. 

Fjöliðjan á Akranesi var með starfsemi sína í húsinu við Dalbraut 8.

Einnig stendur til að rífa húsið við Vesturgötu 62 – sem er í eigu ríkisins. Það hús var á sínum tíma íþróttahús, kennslustofa fyrir smíðar og nú síðast var Búkolla með nytjamarkað í því húsi. 

Suðurgata 124.
Suðurgata 108.
Dalbraut 10 og 8.
Vesturgata 62.