Byggingakrani féll á Akraneshöllina – stórt gat er á þaki hallarinnar

Betur fór en á horfðist þegar byggingakrani, sem verið er að nota við framkvæmdir við nýtt íþróttahús við Jaðarsbakka, féll á Akraneshöllina. 

Á sama tíma voru yngstu iðkendur hjá Knattspyrnufélagi Akraness við æfingar.

Nemendur í 1. og 2. bekk voru að ljúka við æfingu og nemendur í 5.og 6. bekk voru að hefja æfingu. 

Miklar drunur og hávaði fylgdu þessu óhappi og opnaðist stórt gat á þak Akraneshallarinnar. 

Akraneshöllinni hefur verið lokað á meðan aðstæður eru skoðaðar.

Í tilkynningu frá Knattspyrnufélagi Akraness kemur fram að líklega verði ekki hægt að æfa í knattspyrnuhúsinu næstu dagana. 

Eins og sjá má á myndunum mun taka töluverðan tíma að lagfæra þakið á Akraneshöllinni. 

Hér má sjá hvernig staðan er inni í Akraneshöllinni.