Stórt skref stigið í tæknivæðingu skólastarfs í Brekkubæjarskóla

Stórt skref var stigið í tæknivæðingu skólastarfs í Brekkubæjarskóla nýverið. Nemendur á unglingastigi í tveimur elstu bekkjum skólans hafa nú fengið fartölvur til afnota. 

Fyrstu tölvurnar bárust í þessari viku og ríkir mikil ánægja hjá nemendum með þessa þróun. 

Frá þessu er greint á heimasíðu Brekkubæjarskóla.  

Bæjarráð – og bæjarstjórn tóku ákvörðun um að fara í þessa fjárfestingu á haustmánuðum á þessu ári. 

Eins og áður segir eru tölvukaupin stórt skref í að tæknivæða skólastarf í Brekkubæjarskóla. 

Hver nemandi hefur nú fartölvu til umráða til að vinna verkefni á. 

Með þessari tölvuinnleiðingu aukast ennfremur leiðir nemenda til að nálgast og vinna viðfangsefni sín.