Pistill: „Roðagyllum heiminn, 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2022“

Aðsend grein frá Soroptimistaklúbbi Akraness og nágrennis.

Soroptimistar um allan heim munu í ár. eins og mörg undanfarin ár, slást í för með um 6000 samtökum í 187 löndum sem leidd eru af Sameinuðu þjóðunum til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi gegn stúlkum og konum með þátttöku í 16 daga átakinu #roðagyllumheiminn, #orangetheworld. 

Roðagyllti liturinn sem er litur átaksins táknar bjartari framtíð án ofbeldis gegn konum og stúlkum.

Átakið, sem nú fer fram í þrítugasta og fyrsta sinn, hefst þann 25. nóvember á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gagnvart konum og stúlkum og því lýkur þann 10. desember á hinum alþjóðlega mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna sem jafnframt er dagur Soroptimista.

  • Markmið 16 daga átaksins er að beina athyglinni að alvarleika kynbundins ofbeldis, fræða almenning og hvetja til að ofbeldið verði stöðvað. Til þess þarf vitundarvakningu.
  • Ein af hverjum þremur konum hafa verið beittar ofbeldi á lífsleiðinni og er það eitt útbreiddasta mannréttindabrot í heimi.
  • Nærri 140 konur eru myrtar á hverjum degi af nánum fjölskyldumeðlimi.
  • Um 15 milljónir núlifandi unglingsstúlkna, 15-19 ára, hafa verið beittar kynferðislegu ofbeldi.
  • Konur eru 72% allra þeirra í heiminum sem hneppt eru í mansal og kynlífsþrælkun.
  • 200 milljónir núlifandi stúlkna og kvenna hafa verið limlestar á kynfærum.
  • Á hverri mínútu eru 23 barnungar stúlkur þvingaðar í hjónaband.

Sú hefð hefur skapast að ákveðið málefni verður i í brennidepli ár hvert.

Áhersla íslenskra Soroptimista mun að þessu sinni beinast að mismunandi birtingu ofbeldis, undir yfirskriftinni ‚Þekkjum rauðu ljósin‘. 

Þau eru flokkuð í sex rauð ljós: Andlegt ofbeldi, líkamlegt ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi, fjárhagslegt ofbeldi, stafrænt ofbeldi og að lokum eltihrellir. 

Rauðu ljósin eru viðvörunarmerkin sem má greina hjá þeim sem fyrir ofbeldinu verða og ef við lærum að þekkja þau þá getum við gert eitthvað til að hjálpa viðkomandi.

Ýmislegt verður gert þessa 16 daga til að beina athygli að Rauðu ljósunum og Soroptimistaklúbbur Akraness hefur í ár hvatt stofnanir og fyrirtæki til að roðagylla byggingar til að vekja athygli á málstaðnum.

Soroptimistaklúbbur Akraness og nágrennis.