Kisum á vergangi fjölgar á Akranesi – sjálfboðaliðar úr félaginu Villikettir óska eftir aðstoð

Félagið Villikettir var stofnað snemma árs 2014 til að standa vörð um dýravernd fyrir villta ketti á Íslandi. Á Akranesi er hópur sjálfboðaliða sem lætur velferð villikatta sig miklu máli skipta og í tilkynningu frá Vesturlandsdeild Villikatta er verk að vinna til þess að bæta ástandið. 

Félagið hefur verið með skrifstofugám frá Stálsmiðjunni til umráða en nú er svo komið að það rými er án rafmagns – og því ónothæft. Mikið er um kisur á vergangi á Akranesi og öll fósturheimili eru full. Án húsnæðis er starf félagsins í uppnámi – en frá árinu 2018 hafa sjálfboðaliðar komið að 57 verkefnum þar sem að vergangskisur hafa fengið aðstoð frá félaginu. Á Vesturlandi öllu hafa verkefni hópsins verið um 110 frá upphafi.  

Í tilkynningunni kemur einnig fram að félagið hafi fundað með bæjaryfirvöldum á Akranesi um framtíðarlausn á málefnum villikatta – en engin niðurstaða hefur fengist í þeim viðræðum. 

„Allir kettir sem koma til okkar fara til dýralæknis og fá aðhlynningu. Án húsnæðis þá reynist sú vinna töluvert erfiðari – það virðist vera mikið magn af kisum á vergang sem þurfa aðstoð. Félagið hefur fengið góðan stuðning frá íbúum á Akranesi – það ber að þakka. Félagið telur að Akraneskaupstaður gæti komið til móts við þetta verkefni – því staðan er mjög slæm.

Félagið bendir á að hægt er að styðja við rekstur þess með því að versla á Jólamarkaði sem verður við Akratorg í desember en einnig er hægt að leggja beint inn á reikning félagsins:  

Reikningur Villikatta Vesturlands
0133 – 26 – 005536
710314 – 1790