Lilló Hardcorefest tekur völdin í gamla Landsbankahúsinu við Akratorg

Þungarokkið mun taka völdin í gamla Landsbankahúsinu um næstu helgi þar sem að Ægisbraut Records blæs til harðkjarna þungarokkshátíðar – sem fengið hefur nafnið „Lilló Hardcorefest.“

Á hátíðinni verða alls 17 hljómsveitir sem koma fram, þar af eru 5 þeirra frá Akranesi.

Þessi hátíð hefur verið árviss viðburður – og er fyrir alla aldurshópa, það er frítt inn og allir velkomnir.

Nánar á fésbókarsíðunni  „Lilló Hardcorefest“.

Hér fyrir neðan er upptaka úr útvarpsþætti á X-inu þar sem að Ómar Úlfur ræddi við forsprakka hátíðarinnar.