Daníel Guðrúnarson Hrafnkelsson, starfsmaður Fjöliðjunnar skrifar:
Á Akranesi er bæjarstjórn sem þykist vita meira en aðrir og ákveður allt eða margt á lokuðum fundum. En málið er að þeir geta ekki vitað allt, eins og þeir halda.
Nefnum eitt dæmi með vinnustaðinn Fjöliðjuna sem er verndaður vinnustaður, þar eru alls 78 starfsmenn ásamt leiðbeinendum.

Út frá þekkingu og reynslu þeirra vita þau best hver þörfin er og hvað þeim vantar. Verkefni þeirra eru fjölbreytt og tækin sem þau nota eru af mismunandi gerðum og stærðum. Það þýðir að stærð rýmis eða húsnæðis þarf að miðast að því og hafa þarf í huga aðgengi fyrir alla, þar með talið hjólastóla.
Núna á að setja þessa starfsemi ásamt þorpinu í samfélagsmiðstöð í blokk. Hvað eiga börn og fatlaðir sameiginlegt? Ekki neitt. Oft er gert grín af fötluðum og oft á tíðum eru foreldrar meðvirkir. Svo ekki sé minnst á að sagt er að ekki megi vera með hávaða í blokk. En hvernig er það með börn? Eru þau ekki oft á tíðum með hávaða? Af hverju mega þá ekki vélar sem notaðar eru til að pakka fara þangað inn? Það er algjörlega út í hött.
Svo er það bæjarstjórnin sem ákvað þetta á lokuðum fundi án þess að hafa samráð við okkur sem vinnum þarna. Hvernig geta þeir vitað hvað við þurfum og viljum? Eru þeir að vinna þarna eða hafa þeir eitthvað verið í Fjöliðjunni að viti eða? Ég held ekki. Allaveganna hefur enginn séð þá þarna sem þýðir að þeir ættu að koma og vera með okkur alla daga í 3 vikur og sjá hvernig starfsemin okkar er.
Ég skora á bæjarstjórnina að koma og vera með okkur í Fjöliðjunni næstu 3 vikur frá klukkan 8 til 16 og sjá með eigin augum hver þörfin okkar er. Ef þið þykist vita betur skulið þið halda áfram og endurnýja húsnæðið á Dalbrautinni eins og átti að gera áður en Samfélagsmiðstöðin var ákveðin, án allra vitundar. Þið eruð ekki að vinna í Fjöliðjunni og vitið ekki þarfir okkar eða vilja.
Daníel Guðrúnarson Hrafnkelsson, starfsmaður Fjöliðjunnar

Besti árangur frá upphafi hjá Káramönnum !
Smelltu hér ef þú vilt styrkja Skagafréttir Knattspyrnuliðið Kári frá Akranesi náði sínum besta árangri frá upphafi þar sem að liðið var hársbreidd frá því

Framkvæmdir hefjast í gamla Landsbankahúsinu
Smelltu hér ef þú vilt styrkja Skagafréttir Það verður mikið um að vera í gamla Landsbankahúsin við Akratorg um næstu helgi en þá hefjast fyrstu

Sóley og Sara tóku þátt á úrtaksæfingum hjá KSÍ
Smelltu hér ef þú vilt styrkja Skagafréttir Tveir leikmenn úr röðum ÍA tóku nýverið þátt á úrtaksæfingum fyrir U-15 ára landslið Íslands í knattspyrnu –

Bæjarstjórnin brást hratt við mótmælum og breytir um stefnu
Smelltu hér ef þú vilt styrkja Skagafréttir Móttaka fyrir pappír og plast fyrir íbúa á Akranesi verður framvegis í móttökustöð Gámu í Höfðaseli. Og ekki

Mótmæla fyrirhugaðri staðsetningu á nýrri grenndarstöð
Smelltu hér ef þú vilt styrkja Skagafréttir Íbúar við Esjuvell og Dalbraut hafa áhyggjur af fyrirhugaðri staðsetningu á grenndarstöð við Dalbraut/Esjuvelli – en Akraneskaupstaður hefur

Hugmynd Basalts fékk flest atkvæði í íbúakosningu
Smelltu hér ef þú vilt styrkja Skagafréttir Arkitektastofan Basalt fékk flest atkvæði hjá íbúum á Akranesi hvað varðar nýtt deiliskipulag á svæðinu við Ægissbraut. Akraneskaupstaður


