Stjórn Körfuknattleiksfélags ÍA með harðorða yfirlýsingu eftir hatursorðræðu í garð Dupree

Í gær fór fram leikur Hamars og ÍA í 1. deild á Íslandsmóti karla í körfuknattleik í Hveragerði. Þar höfðu heimamenn betur en lykilmaður ÍA, Jalen Dupree, fékk brottvísun snemma leiks – þegar hann átti í orðaskiptum við starfsmann leiksins. 

ÍA var í góðri stöðu þegar þetta atvik átti sér stað en eftir brottrekstur miðherjans stæðilega fór að halla undir fæti hjá ÍA sem tapaði leiknum. 

Forsvarsmenn Körfuknattleiksfélags ÍA sendu frá sér harðorða yfirlýsingu í dag – þar sem þeir krefjast þess að hart verði tekið á hatursorðræðu starfsmannsins sem átti í hlut. 

Yfirlýsing frá Körfuknattleikfélagi ÍA vegna óviðeigandi ummæla

Stjórn körfuknattleiksdeildar ÍA harmar og fordæmir með öllu hegðun starfsmanns á vegum Hamars í leik Hamars og ÍA í 1. deild karla sem átti sér stað í gær. 

Starfsmaðurinn fékk óáreittur og ítrekað að áreita leikmenn ÍA og þá sérstaklega Jalen Dupree sem taldi sig upplifa sig sem fornarlamb hatursorðræðu í sinn garð. 

Það er von stjórnar Körfuknattleiksdeildar ÍA að hart verði tekið á þessu innan körfuknattleiksdeildar Hamars og að tryggt verði að aðstæður sem þessar komi aldrei upp aftur svo leikmenn og þjálfarar af öllum kynjum og kynþáttum geti spilað leiki án þess að eiga á hættu að verða fyrir fordómum eða mismunun af einhverju tagi.

Virðingarfyllst, stjórn körfuknattleiksfélags ÍA.