Skaginn syngur inn jólin 2022 – Jólalegt uppstreymi í aðalhluverki í 19. glugga dagatalsins

Menningarverkefnið Skaginn syngur inn jólin er langt komið en í dag var 19. glugginn opnaður.

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir halda utan um verkefnið líkt og undanfarin ár. 

Á hverjum degi fram að jólum er nýr gluggi opnaður í þessu tónlistardagatali sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum.

Í dag var nítjándi glugginn opnaður.

Þar eru á ferðinni félagar úr hljómsveit frá Akranesi  – sem á árum áður var landsþekkt uppstreymi. 

 

Hljómsveitin Tíbrá flytur hér lagið Santa Claus Is Coming to Town, lag eftir Fred Coots og textinn er eftir Haven Gillispie. Brynja Valdimarsdóttir syngur lagið.