Nýjar reglur um niðurgreiðslu vegna dvalar barna hjá dagforeldrum samþykktar

Nýjar reglur um niðurgreiðslu vegna dvalar barna hjá dagforeldrum voru nýverið samþykktar í bæjarstjórn Akraness.  Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Breyting á greiðslum til foreldra tekur mið af breytingu um greiðslur fæðingarorlofs (lenging fæðingarorlofs). Niðurgreiðslurnar eru greiddar ellefu mánuði á ári. 

Ein viðamesta breytingin á reglum um niðurgreiðslu vegna dvalar barna hjá dagforeldrum sem tekur gildi núna 1. janúar 2023 er veruleg hækkun á niðurgreiðslum til foreldra þegar börn hafa náð innritunaraldri leikskóla. 

Við aldursviðmið síðustu inntöku í leikskóla, þýðir það að þegar börn hjá dagforeldrum hafa náð 13 mánaða aldri verður greiðslan fyrir hvert barn kr. 105.000,- miðað við 8 klst. vistun.