Skaginn syngur inn jólin 2022 – Frumsamið jólalag eftir unga tónlistarkonu í aðalhlutverki í 20. glugganum

Menningarverkefnið Skaginn syngur inn jólin er langt komið en í dag var 20. glugginn opnaður og aðeins fjórir flytjendur eiga því eftir að koma fram á þessu ári. 

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir halda utan um verkefnið líkt og undanfarin ár. 

Á hverjum degi fram að jólum er nýr gluggi opnaður í þessu tónlistardagatali sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum.

 

Í dag var tuttugasti glugginn opnaður.

 

Ung tónlistarkona frá Akranesi er í aðalhlutverki í dag – en hún samdi lagið á aðeins tveimur dögum. 

 

Hekla María Arnardóttir, flytur hér lagið Fram yfir jól en hún á bæði lagið og textann.