Skaginn syngur inn jólin 2022 – Prentlærður Skagamaður keyrir inn jólastemninguna í 21. glugganum

Menningarverkefnið Skaginn syngur inn jólin er langt komið en í dag var 21. glugginn opnaður og aðeins þrír flytjendur eiga því eftir að koma fram á þessu ári.

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir halda utan um verkefnið líkt og undanfarin ár.

Á hverjum degi fram að jólum er nýr gluggi opnaður í þessu tónlistardagatali sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum.

Í dag var tuttugasti og fyrsti glugginn opnaður.

Þaulreyndur söngvari, prentlærður Skagamaður, opnaði gluggann í dag og keyrir inn jólastemninguna með þekktu lagi.

Karl Örn Karlsson syngur hér lagið Driving home for Christmas – sem Chris Rea samdi og flutti á sínum tíma.