Litli bróðir Sævars Loga er tímamótabarn í íbúasögu Akraness

Sævar Logi Logason – sem er rétt rúmlega þriggja ára gamall, eignaðist í gær bróður, þann 21. desember 2022. 

Það eru ánægjuleg tíðindi fyrir Sævar Loga og foreldra hans, Yrsu Þöll Eyjólfsdóttur og Loga Breiðfjörð Franklínsson. 

Fæðing drengsins er einnig stór kafli í íbúasögu Akraness – því tilkoma litla drengsins í samfélagið gerir það að verkum að íbúar á Akranesi eru nú alls 8000.  

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness færði foreldrum og nýjasta íbúanum heillaóskir og gjöf frá Akraneskaupstað í tilefni dagsins.