„Nú ljóma aftur ljósin skær“ – frá tónleikum Kórs Akraneskirkju 2022 

Hér er að finna upptöku frá jólatónleikum Kórs Akraneskirkju sem fram fóru fimmtudaginn 15. desember s.l. í Akraneskirkju. 

 

Hér flytur kórinn lagið „Nú ljóma aftur ljósin skær“ – lag eftir Emmy Köhler, Gunnlaugur V. Snævarr þýddi textann og útsetning lagsins er eftir Anders Öhrwall.


Yfirskrift tónleikanna var „Jólalög og óbótónar“ en einsöngvarar komu úr hópi kórfélaga.

Hilmar Örn Agnarsson er stjórnandi kórsins – en hljóðfæraleikarar voru Birgir Þórisson sem lék á píanó, Eyþór Franzson Wechner lék á orgel og Peter Tompkins lék á óbó.

Skagafrettir.is tók upp myndbandið.