Lagt til að færa eitt af kennileitum Akraness í viðamiklum breytingum á Jaðarsbakkasvæðinu

Í bréfi sem ÍA  og Knattspyrnufélag ÍA (KFÍA) sendu á bæjarráð þann 30. nóvember koma fram áhugaverðar tillögur um breytingar á Jaðarsbakkasvæðinu. 

ÍA og KFÍA telja að nauðsynlegt sé að fara í verulegar endurbætur á knattspyrnuvellinum við Jaðarsbakka. Öflugur hópur sjálfboðaliða gerði völlinn á miðjum fjórða áratug síðustu aldar – og er ljóst að undirlag vallarins er langt á eftir þeim gæðastöðlum sem notaðir eru í dag við uppbyggingu á slíkum íþróttamannvirkjum.

Í bréfinu eru viðraðar hugmyndir og lausnir til skemmri og lengri tíma – ef ráðist yrði í risavaxnar breytingar á legu Akranesvallar. 

Þar er sagt frá þeirri hugmynd að snúa Akranesvelli í 90 gráður og þar með myndi völlurinn liggja samhliða vesturhlið Akraneshallar.  

 aðalvöllur myndi vera á 12 þúsund fermetra svæði og með tilfærslunni væri hægt að nýta 1,5 hektara af landsvæði til uppbyggingar og umhverfisbóta. Í bréfinu kemur fram að náttúrugras, hybridgras og gervigras séu allt valkostir sem komi til greina í vali á undirlagi á nýjum grasvelli. Hybrid gras er blanda af náttúrugrasi og gervigrasi – en slík lausn varð fyrir valinu á Kaplakrikavelli hjá FH, 

Ljóst er að með breytingum á aðalvelli verður ekki hægt að leika á honum í 1-2 ár. Það leiðir af sér að gera þyrfti gervigrasvöll austan Akraneshallar – með bráðabirgðaaðstöðu fyrir áhorfendur á meðan framkvæmdum stendur. Sá völlur myndi í framhaldinu nýtast sem æfinga – og keppnisvöllur fyrir leiki KFÍA til lengri tíma. 

Ekki hafa verið lagðar fram hugmyndir um hvað verður gert við áhorfendastúkuna við Akranesvöll í þessu breytingarferli – eða hvort ný áhorfendastúka verði gerð á vesturhlið Akraneshallar. 

Bréf ÍA og KFÍA má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. 

Myndirnar hér fyrir neðan eru samsettar af skagafrettir.is og eru aðeins byggðar á þeim gögnum sem koma fram í bréfi ÍA.