Salka Hrafns æfir með U-17 ára landsliði KSÍ – Lilja Björk er einnig í hópnum

Salka Hrafns Elvarsdóttir, markvörður úr ÍA, mun æfa með U-17 ára landsliði kvenna í knattspyrnu dagana 8.-11. janúar n.k. Lilja Björk Unnarsdóttir, fyrrum leikmaður ÍA, og núverandi leikmaður Selfoss er einnig í æfingahópnum.

Alls eru 24 leikmenn boðaðir í þessa æfingatörn sem Magnús Örn Helgason landsliðsþjálfari boðar til. 

Leikmennirnir 24 koma frá 13 félögum, flestir frá Breiðablik eða sex. Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ og á Kópavogsvelli.

Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir verkefni fyrri hluta ársins. Ísland tekur þátt í æfingamóti í Portúgal 2.-8. febrúar þar sem liðið mætir Portúgal, Englandi og Finnlandi. Í mars leikur liðið svo í seinni umferð undankeppni EM 2023 og mætir þar Albaníu og Lúxemborg.

Hópurinn

  • Hrefna Jónsdóttir – Álftanes
  • Bryndís Halla Gunnarsdóttir – Breiðablik
  • Harpa Helgadóttirt – Breiðablik
  • Herdís Halla Guðbjartsdóttir – Breiðablik
  • Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir – Breiðablik
  • Margrét Brynja Kristinsdóttir – Breiðablik
  • Olga Ingibjörg Einarsdóttir – Breiðablik
  • Berglind Freyja Hlynsdóttir – FH
  • Emma Björt Arnarsdóttir – FH
  • Helga Rut Einarsdóttir – Grindavík
  • Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir – Haukar
  • Katrín Rósa Egilsdóttir – HK
  • Björg Gunnlaugsdóttir – Höttur
  • Salka Hrafns Elvarsdóttir – ÍA
  • Kolbrá Una Kristinsdóttir – KH
  • Ísabella Sara Tryggvadóttir – KR
  • Jóhanna Elín Halldórsdóttir – Selfoss
  • Lilja Björk Unnarsdóttir – Selfoss
  • Bergdís Sveinsdóttir – Víkingur R.
  • Freyja Stefánsdóttir – Víkingur R.
  • Sigdís Eva Bárðardóttir – Víkingur R.
  • Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir – Víkingur R.
  • Angela Mary Helgadóttir – Þór/KA
  • Krista Dís Kristinsdóttir – Þór/KA