Rut ráðin sem aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Akraness

Rut Berg hefur verið ráðin aðstoðarskólastjóri í Tónlistarskólanum á Akranesi. Hún tekur við starfinu af Birgi Þórissyni. Þetta kemur fram í tilkynningu.  

„Rut er öllum hnútum kunnug í skólanum því hún var áður nemandi skólans og útskrifaðist með framhaldspróf á flautu frá skólanum árið 2005. Hún lauk B.Mus. prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2009 og hefur kennt við skólann frá 2005, þar af sem deildarstjóri síðustu fjögur ár. Rut er fjölhæf tónlistarkona og hefur komið fram á ýmsum viðburðum bæði sem flautu- og harmonikkuleikari. Við bjóðum hana velkomna í nýtt og spennandi starf,“ segir í frétt á heimasíðu skólans.