Þrír leikmenn úr ÍA valdir í æfingahóp U-19 ára landsliðs KSÍ

Þrír leikmenn úr röðum ÍA hafa verið valdir í æfingahóp U19 ára liðs karla hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Næsta verkefni liðsins er milliriðill undankeppni EM 2023. Þar er liðið í riðli með Englandi, Tyrklandi og Ungverjalandi. Ólafur Ingi Skúlason er þjálfari liðsins. 

Skagamennirnir sem valdir voru í hópinn eru: Ármann Ingi Finnbogason, Haukur Andri Haraldsson og Ingi Þór Sigurðsson.

Alls er 26 leikmenn í hópnum. Þeir koma frá 16 félögum þar af eru tveir leikmenn samningsbundnir erlendum félögum. 

Breiðablik er með flesta leikmenn í hópnum eða fjóra alls, ÍA er með 3 leikmenn líkt og Stjarnan.  

Breiðabilk – 3 
ÍA – 3
Stjarnan 3
Fjölnir – 2 
Víkingur R. 2 
Þór Ak. 2
Afturelding – 1
Fylkir – 1
HK – 1 
Norrköping – 1
Keflavík -1
KR -1 
Leiknir R. – 1
Malmö – 1 
Valur – 1 
Þróttur R. – 1

Hópurinn er þannig skipaður: 

Sævar Atli Hugason – Afturelding
Arnar Daníel Aðalsteinsson – Breiðablik
Arnar Númi Gíslason – Breiðablik
Torfi Geir Halldórsson – Breiðablik
Tómas Orri Róbertsson – Breiðablik
Halldór Snær Georgsson – Fjölnir
Júlíus Már Júlíusson – Fjölnir
Ómar Björn Stefánsson – Fylkir
Kristján Snær Frostason – HK
Jóhannes Kristinn Bjarnason – IFK Norrköping
Ármann Ingi Finnbogason – ÍA
Haukur Andri Haraldsson – ÍA
Ingi Þór Sigurðsson – ÍA
Ásgeir Orri Magnússon – Keflavík
Rúrik Gunnarsson – KR
Davíð Júlían Jónsson – Leiknir R.
Ágúst Orri Þorsteinsson – Malmö FF
Adolf Daði Birgisson – Stjarnan
Róbert Frosti Þorkelsson – Stjarnan
Sigurbergur Áki Jörundsson – Stjarnan
Ólafur Flóki Stephensen – Valur
Gísli Gottskálk Þórðarson – Víkingur R.
Sigurður Steinar Björnsson – Víkingur R.
Bjarni Guðjón Brynjólfsson – Þór Ak. 
Kristófer Kristjánsson – Þór Ak.
Hinrik Harðarson – Þróttur R.