Tinna Ósk Grímarsdóttir er Skagamaður ársins 2022

Tinna Grímarsdóttir var í gær kjörin Skagmaður ársins 2022. Kjörinu var lýst á Þorrablóti Skagamanna sem fram fór í gærkvöldi, 21. janúar 2021. Þetta er í 13. sinn sem þessi viðurkenning er veitt. 

Tinna hefur á undanförnnum árum komið miklu í verk og verið öðrum fyrirmynd. Hún hefur markvisst unnið að því að gera Akranes að enn betri bæ. Hún nýtir öll tækifæri til þess að tala jákvætt um það sem er í boði á Akranesi, hún hefur sýnt frumkvæði og hvatt íbúa á Akranesi til þess að taka þátt í viðburðum og nýta þá þjónustu sem er í boði í samfélaginu. 

Fulltrúar frá stuðningshópnum #Team Tinna tók á móti viðurkenningunni fyrir hennar hönd þar sem Tinna gat ekki tekið þátt í Þorrablótinu. 

Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs kynnti Skagamann ársins með eftirfarandi stökum sem Heiðrún Jónsdóttir þjónustufulltrúi á bæjarskrifstofunni orti af þessu tilefni:

 

Skagamaður skínandi og klár,
Skaganum að hrósa sérhvert ár
ekki séns að þreytast muni á því
þetta er besta pláss að vera í.
Segir líka öllum sí og æ,
sæktu gleði í þinn heimabæ.

Brandara- og bingófíkill er,
bestu hliðar lífsins alltaf sér.
Þykir svona eðalfyndni fín
Fóstbræðra- og Svínasúpu grín.
Í heitum pottum hlýjar hverri taug,
helst af öllu í Jaðarsbakkalaug.

Finnur upp á fullt af skemmtunum
í fjölskyldu- og vinahittingum.
Börnunum þá bannað ekkert er
í brjálað stuð þau fá að hella sér.
Þá gjarnan margar gefast stundirnar
sem góðar skapa og bjartar minningar.

Í bissness fór og búð upp úr því spratt
hún blómstraði og efldist nokkuð hratt
og ýmislegt þar flott er hægt að fá,
en finnst þar líka hræðilegt að sjá
hauskúpur og hrekkjavökudót
sem hentar fyrir sérstök mannamót.

Það endalaust má létta bæjarbrag
bæta og styrkja farsælt samfélag.
Talsvert hefur tekið vel því á
hún Tinna Ósk sem nefna hérna má
að titil þennan ber með sóma og sann.
Við sendum knús á ársins Skagamann.

Í ræður Lífar kom eftirfarandi fram: 

Tinna er einstök fyrirmynd, bjartsýn og hvetjandi. Hún hefur í gegnum störf sín fyrir Krabbameinsfélag Akraness staðið fyrir viðburðum eins og Bingó-i, „Perlað af krafti“, haldið tónleika með Guðrúnu Árnýju, Spákvöldi með Siggu kling og ýmislegt fleira. 

Tinna rekur verslunina Dótarí og hefur þar boðið upp á viðburði fyrir yngri kynslóðina s.s. töfrasýningar með Lalla töframanni.

Tinna glímir við stórt og erfitt verkefni sem hún hefur tekist á við af einskærri jákvæðni, ásamt því að veita styrk til annarra og hefur hún sannarlega hreyft við Skagamönnum.

Tinna Ósk fékk málverk eftir Bjarna Þór Bjarnason að gjöf og veglegan blómvönd.  Vinkonur og stuðningshópur hennar “Team Tinna” tóku við viðurkenningu fyrir hennar hönd og fluttu hvetjandi ávarp í anda Tinnu til allra Akurnesinga.

Eftirtaldir hafa fengið þessa viðurkenningu. 

 

2022: Tinna Ósk Grímarsdóttir

2021: Starfsfólk leik – grunn – og framhaldsskóla og frístundastarfi.

2020: Heilbrigðisstarfsfólk HVE.

2019: Andrea Þ. Björnsdóttir.

2018: Bjarni Þór Bjarnason.

2017: Sigurður Elvar Þórólfsson.

2016: Dýrfinna Torfadóttir.

2015: Erna Guðnadóttir og Einar J. Ólafsson.

2014: Steinunn Sigurðardóttir.

2013: Ísólfur Haraldsson.

2012: Hilmar Sigvaldason.

2011: Haraldur Sturlaugsson.

2010: Þórður Guðnason.