Helga Ingibjörg í einlægu viðtali um baráttuna við krabbameinið

„Í júní á þessu ári ætla ég að vera laus við krabbameinið,“ segir Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir í viðtali sem birt var í Íslandi í dag á Stöð 2 í vikunni. 

Helga Ingibjörg er 35 ára lögreglukona en hún hefur verið búsett á Akranesi frá 13 ára aldri. Helga Ingibjörg segir í einlægu viðtali frá upplifun sinni þegar hún greindist með krabbamein – 

Um þessar mundir stendur yfir fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. 

Markmið átaksins er að selja nýjar Lífið er núna húfur og vekja athygli á þeim áskorunum sem verða á vegi fyrir þau sem greinast með krabbamein sem og aðstandendum og hvernig Kraftur getur stutt við þau með hjálp almennings og fyrirtækja í landinu.

Um 70 ungir einstaklingar greinast á ári hverju og hefur það bæði áhrif á þau greindu sem og fjölskyldur og ástvini þeirra. Átakið hófst í dag, 25. janúar og stendur til 20. febrúar en Lífið er núna húfurnar verða í sölu í þrjár vikur.

„Fyrir hvern setur þú upp kolluna er yfirskrift átaksins í ár og vísar til þess að oft á tíðum missir fólk hárið í krabbameinsmeðferð og sumir velja að setja upp hárkollu. Við getum sýnt samstöðu með því að setja upp Lífið er núna kolluna sem er líka annað heiti yfir húfu og vekja þannig athygli á málefnum ungs fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum,“ segir Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Krafts. Sem fyrr verður slagorð Krafts „Lífið er núna“ í hávegum haft og munum við hvetja fólk til að sýna Krafti og félagsmönnum stuðning í verki með húfukaupum.