Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna í dag, mánudaginn 30. janúar, vegna veðurs.
Boðað hefur verið til samráðfundar Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra en viðbúið þykir að Samhæfingarstöð Almannavarna verði virkjuð gangi veðurspár eftir.
Vegurinn um Kjalarnes gæti lokast með stuttum fyrirvara eins og fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Kjalarnes: Í dag, mánudaginn 30. janúar verður Kjalarnes á óvissustigi vegna veðurs á milli kl. 12:00 - 00:00 og gæti vegurinn lokast með stuttum fyrirvara. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) January 30, 2023