Flottur árangur hjá sundfólki úr röðum ÍA á alþjóðlega RIG mótinu 

Sundfólk úr röðum Sundfélags Akraness náði góðum árangri á Alþjóðlega mótinu Reykjavík International sem fram fór um liðna helgi.

Alls tóku um 330 keppendur þátt frá 16 löndum – þar á meðal keppendur sem hafa tekið þátt á Ólympíuleikum – heimsmeistara- og Evrópumeistaramótum.

Keppendur frá ÍA voru alls 12. Þar náðust m.a. lágmörk fyrir Evrópumeistaramót unglinga, 5 ný Akranesmet voru sett og tvenn silfurverðlaun fóru heim á Skagann. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Enrique Snær Sigurðsson vann silfur í 200 m fjórsundi og 200 m flugsundi, í flugsundi var hann aðeins 0,02 frá gullinu eftir mjög spennandi lokasprett. Hann bætti 13 ára gamalt Akranesmet í 200 m baksundi á tímanum 2.15.87, gamla metið átti Jón Þór Hallgrímsson á 2.17.77 frá árinu 2010.

Einar Margeir Ágústsson náði lágmarki fyrir Evrópameistramót unglinga sem fer fram í Serbíu í sumar. Hann varð í 4. sæti í 50 m bringusundi á tímanum 29.26 en Anton Sveinn Mckee var sigurvegari á 28.66 sek.

Kristján Magnússon setti hvorki meira né minna en þrjú Akranesmet í baksundi :

Í fullorðinsflokki setti Kristján met í 50 m baksundi á 29.16 gamla metið átti Jón Þór Hallgrímsson fra 2012 á 29.29 Í unglingaflokki setti Kristján tvö met, í 50 m baksundi á tímanum 29.16 sek, en gamla metið átti Jón Ingi Sigurðsson frá 2012 á tímanum 29.62, að auki setti Kristján met í 100 m baksundi á 1.03.34, gamla metið átti Birgir Viktor Hannesson frá árinu 2012 á 1.04.37 mín.
Í 50 m baksundi varð Kristján í 5 sæti og í 7. sæti i 100 m baksundi.

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir synti í úrslitum í fjórum keppnisgreinum og hafnaði hún í 6. sæti í 100 m skriðsundi og í 7. sæti bæði í 50 m flugsundi og 50 m skriðsundi.

Guðbjarni Sigþórsson synti í B-úrslitum í 100 m skriðsundi og varð í 15. sæti, en það var fjórði besti tíminn hjá Íslendingum á mótinu í þessari grein.

Íris Arna Ingvarsdóttir náði sínu fyrsta lágmarki fyrir Íslandsmeistaramótið í 200 m baksundi, flottur árangur.

Víkingur Geirdal, Arna Karen Gísladóttir, Viktoria Emilia Orlita, Polina Shyian og Ingibjörg Svava Mágnusardóttir tóku líka þátt á mótinu og stóðu sig mjög vel.