Oliver Stefánsson á heimleið úr atvinnumennsku

Oliver Stefánsson, sem lék með ÍA á síðasta tímabili, hefur rift samningi sínum við sænska úrvalsdeildarliðið Norrköping. Þetta kemur fram á fotbolti.net. 

Oliver ætlar sér að leika með liði í efstu deild á Íslandi og eru mörg lið sem hafa áhuga á Skagamanninum. 

Oliver er fæddur árið 2002 og verður því 21 árs á þessu ári. Hann lék með yngri flokkum ÍA áður en hann samdi við Norrköping árið 2018 – þá 16 ára gamall. 

Varnarmaðurinn sterki glímdi við erfið meiðsli og veikindi á meðan hann var í herbúðum Norrköping. 

Hann var lánaður til ÍA í byrjun síðasta árs – með það að markmiði að koma sér af stað eftir langa fjarveru frá keppnisfótbolta. Oliver lék alls 23 leiki með ÍA í Bestu deildinni – en liðið féll úr þeirri deild í lok tímabilsins í fyrra.