Tveir leikmenn frá ÍA valdir í æfingahóp U21 árs landsliðs karla hjá KSÍ 

Tveir leikmenn úr röðum ÍA voru í U-21 árs landsliðshóp KSÍ í karlaflokki sem æfði saman um liðna helgi, 7.-8. febrúar í Miðgarði í Garðabæ.

Davíð Snorri Jónasson, er þjálfari liðsins og valdi hann 26 leikmenn frá 14 félögum – en allir leikmennirnir leika með liðum á Íslandi.

Næsta verkefni liðsins er vináttuleikur gegn Írum sem fram fer í Cork á Írlandi þann 26. mars 2023.

Æfingarnar fara báðar fram í Miðgarði í Garðabæ og eru liður í undirbúningi liðsins fyrir vináttuleik gegn Írlandi 26. mars sem leikinn verður í Cork á Írlandi. Æfingahópurinn samanstendur af leikmönnum sem leika á Íslandi.

FH er með flesta leikmenn eða 6 alls.  

 

Hópurinn er þannig skipaður:

FH (6), Fylkir (3), Víkingur R. (3), Breiðablik (2), ÍA (2), Stjarnan (2), Leiknir R. (1), Fjölnir (1), HK (1), Selfoss (1), Valur (1), Þróttur R. (1), Þór Ak. (1).

  • Andi Hoti – Leiknir R.
  • Anton Logi Lúðvíksson – Breiðablik
  • Eyþór Aron Wöhler – Breiðablik
  • Baldur Logi Guðlaugsson – FH
  • Davíð Snær Jóhannsson – FH
  • Jóhann Ægir Arnarsson – FH
  • Logi Hrafn Róbertsson – FH
  • Ólafur Guðmundsson – FH
  • Úlfur Ágúst Björnsson – FH
  • Lúkas Logi Heimisson – Fjölnir
  • Arnór Gauti Jónsson – Fylkir
  • Ólafur Kristófer Helgason – Fylkir
  • Óskar Borgþórsson – Fylkir
  • Eiður Atli Rúnarsson – HK
  • Árni Marínó Einarsson – ÍA
  • Jón Gísli Eyland Gíslason – ÍA
  • Arnar Breki Gunnarsson – ÍBV
  • Jón Vignir Pétursson – Selfoss
  • Ísak Andri Sigurgeirsson – Stjarnan
  • Örvar Logi Örvarsson – Stjarnan
  • Orri Hrafn Kjartansson – Valur
  • Ari Sigurpálsson – Víkingur R.
  • Danijel Dejan Djuric – Víkingur R.
  • Sveinn Gísli Þórkelsson – Víkingur R.
  • Baldur Hannes Stefánsson – Þróttur R.
  • Ragnar Óli Ragnarsson – Þór Ak.