Hvetja íbúa til þess að taka þátt í könnun um stefnumótun Akraneskaupstaðar

Akraneskaupstaður er um þessar mundir í stefnumótunarvinnu fyrir sveitarfélagið. Markmiðið er að móta yfirstefnu fyrir næstu 5-10 árin og setja fram metnaðarfulla sýn um árangur og aukna þjónustu til framtíðar samhliða fjárhagslegum markmiðum sveitarfélagsins og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. 

Vinnan felur í sér að draga fram lykil áskoranir og tækifæri, móta skýra stefnu og markmið og forgangsraða aðgerðaáætlun til að hrinda stefnu í framkvæmd.

Hluti af þessu ferli er uppbyggilegt samráð við alla hagsmunaaðila sveitarfélagsins og leitum við því til íbúa Akraness. Um er að ræða eina lauflétta könnun um draumabæinn Akranes.

Hægt er að skila inn svari frá 15. til 22. febrúar næstkomandi. Vakin er athygli á því að niðurstöðurnar eru ekki persónugreinanlegar.

Hafðu áhrif á þitt samfélag og taktu þátt!

SMELLTU HÉR TIL AÐ TAKA ÞÁTT