Okkar Akranes – nýr vefur eykur möguleika íbúa á Akranesi að taka þátt í ákvarðanatöku

Okkar Akranes er nýr samráðsvefur sem eykur möguleika íbúa á lýðræðislegri þátttöku í ákvarðanatöku ýmissa verkefna. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað.

 

Í fyrsta „Okkar Akranes“ verkefninu er efnt til hugmyndasöfnunar sem snýr að grænum og opnum svæðum.Verkefnið í heild sinni er þríþætt; hugmyndasöfnun, rafræn kosning og framkvæmd. 

Markmið verkefnisins er að hvetja íbúa til að taka þátt í málefnum sem varða nærumhverfi þeirra fá þá til að koma með hugmyndir og forgangsraða. Fjármagni verður svo útdeilt í smærri framkvæmdir/verkefni á vegum bæjarins með íbúakosningu.

Á samráðsvefnum geta allir sett inn hugmyndir varðandi útfærslur á opnum svæðum á Akranesi. 

Hugmyndasöfnunin er opin í tvær vikur á tímabilinu 21. febrúar til og með 7. mars 2023.

Allir sem hafa áhuga á þessu málefni, á öllum aldri, eru hvattir til þess að senda inn hugmyndir.

Að hugmyndasöfnun lokinni verða 20 hugmyndir valdar áfram í kosningu. Þátttakendur verða látnir vita ef þeirra tillaga fer í kosningu. 

Starfsmenn Akraneskaupstaðar fara yfir tillögurnar, kostnaðarmeta þær og kanna hvort þær uppfylla uppsett skilyrði. 

Í framhaldi af þessu verða gögnin send áfram til skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar sem velur hvaða tillögur verður kosið um.

Í kosningarhluta verkefnisins, sem mun standa yfir frá 28. mars – 11. apríl 2023, gefst öllum íbúum Akraness fæddum árið 2011 eða fyrr, kostur á að kjósa um þær 20 hugmyndir sem valdar voru.

Þeir sem hafa kosningarétt geta kosið allt að fimm tillögur áfram. Vakin er athygli á því að hægt er að kjósa oftar en einu sinni. Þegar kosið er að nýju fellur fyrra val úr gildi.

Nánar á vefnum Okkar Akranes.