Þrjú frá Akranesi fengu kosningu í stjórn – og varastjórn KSÍ 

Ársþing Knattspyrnusambands Íslands fer fram, laugardaginn 25. febrúar, og fer þingið fram á Ísafirði. Kosið verður í stjórn á þinginu og er ljóst að þrír aðilar frá ÍA verða í stjórn og varastjórn KSÍ á næsta ári. 

Pálmi Haraldsson verður áfram í stjórn KSÍ og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson kemur nýr í stjórnina en hann var áður í varastjórn KSÍ. Sigrún Ríkharðsdóttir kemur inn í varastjórn KSÍ.

Vanda Sigurgeirsdóttir verður áfram formaður en kjörtímabili hennar lýkur á næsta ársþingi árið 2024. 

Stjórn KSÍ verður þannig skipuð eftir þingið á Ísafirði,. 

  • Guðlaug Helga Sigurðardóttir, Garði
  • Helga Helgadóttir, Hafnarfirði
  • Torfi Rafn Halldórsson, Reykjavík
  • Unnar Stefán Sigurðsson, Keflavík
  • Halldór Breiðfjörð Jóhannsson, Akranesi
  • Helga Helgadóttir, Hafnarfirði   
  • Tinna Hrund Hlynsdóttir, Ísafirði
  • Unnar Stefán Sigurðsson, Keflavík
  • Ívar Ingimarsson, Egilsstöðum
  • Borghildur Sigurðardóttir, Kópavogi
  • Pálmi Haraldsson, Akranesi
  • Sigfús Ásgeir Kárason, Reykjavík

Varstjórn KSÍ er þannig skipuð: 

  • Hildur Jóna Þorsteinsdóttir, Hafnarfirði 
  • Jón Sigurður Pétursson, Reykjavík
  • Sigrún Ríkharðsdóttir, Akranesi