Eins og fram kom í dag á Skagafréttum mun Haraldur Benediktsson taka við starfi bæjarstjóra á Akranesi eftir nokkrar vikur.
Frá stofnun Akraneskaupstaðar árið 1942 hafa verið starfandi 16 bæjarstjórar – og er Regína Ásvaldsdóttir eina konan sem hefur gegnt því embætti í 80 ára sögu bæjarsins. Haraldur verður því 17. bæjarstjórinn í sögu Akraneskaupstaðar.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Baejarstjorar-fra-upphafi-Akranes--1132x670.png)
Sævar Freyr Þráinsson, tók við starfinu þann 14. mars árið 2017 af Regínu Ásvaldsdóttur, og átti hann því sex ára starfsafmæli á síðasta bæjarstjórnarfundi sem fram fór þann 14. mars 2023.
Gísli Gíslason er sá sem gegnt hefur þessu starfi lengst allra. Gísli var bæjarstjóri Akraness í 18 ár eða á tímabilinu 1987-2005. Björgvin Sæmundsson og Magnús Oddsson voru báðir í 8 ár í þessu embætti. Daníel Ágústínusson var í 6 ár bæjarstjóri og Sævar Freyr hefur verið í 6 ár einnig eins og áður hefur komið fram.
Hér má sjá lista yfir bæjarstóra Akraness frá upphafi.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Arnljotur-Gudmundsson-1200x1200.png)
Arnljótur Guðmundsson (f. 29/6 1912, d. 13/1 1955).
Bæjarstjóri 1942 – 1946.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Gudlaugur-Einarsson-1200x1200.png)
Guðlaugur M. Einarsson (f. 13/1 1921, d. 17/2 1977).
Bæjarstjóri 1946 – 1950.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Sveinn-Finnsson-1200x1200.png)
Sveinn Finnsson (f. 23/11 1920, d. 7/6 1993).
Bæjarstjóri 1950 – 1954.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Daniel-Agustinusson-1200x1200.png)
Daníel Ágústínusson (f. 18/3 1913, d. 11/4 1996).
Bæjarstjóri 1954 – 1960.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Halfdan-Sveinsson-1200x1200.png)
Hálfdán Sveinsson (f. 7/5 1907, d. 18/11 1970).
Bæjarstjóri 1960 – 1962.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Bjorgvin-Saemundsson-1200x1200.png)
Björgvin Sæmundsson (f. 4/3 1930, d. 20/8 1980).
Bæjarstjóri 1962 – 1970.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Gylfi-Isaksson-1200x1200.png)
Gylfi Ísaksson (f. 7/7 1938).
Bæjarstjóri 1970 – 1974.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Magnus-Oddsson-1200x1200.png)
Magnús Oddsson (f. 17/11 1935, d. 11/4 2017).
Bæjarstjóri 1974 – 1982.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Ingimundur-Palsson-1200x1200.png)
Ingimundur Sigurpálsson (f. 24/9 1951).
Bæjarstjóri 1982 – 1987.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Gisli-Gislason-1200x1200.png)
Gísli Gíslason (f. 9/7 1955).
Bæjarstjóri 1987 – 2005
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Gudmundur-Pall-1200x1200.png)
Guðmundur Páll Jónsson (f. 30/12 1957).
Bæjarstjóri 2005 – 2006.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Gisli-Sveinbjorn-Einarsson-1200x1200.png)
Gísli Sveinbjörn Einarsson (f. 12/12 1945).
Bæjarstjóri 2006 – 2010.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Arni-Muli-1200x1200.png)
Árni Múli Jónasson (f. 14/5 1959).
Bæjarstjóri 2010 – 2012
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Jon-Palmi-1200x1200.png)
Jón Pálmi Pálsson (f. 27/7 1954).
Bæjarstjóri 2012 – 2012
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Regina-1200x1200.png)
Regína Ásvaldsdóttir (f. 30/6 1960).
Bæjarstjóri 2013 – 2017.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Saevar-Freyr-1200x1200.png)
Sævar Freyr Þráinsson (f. 16/6 1971).
Bæjarstjóri 2017 til dagsins í dag.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2023/03/Haraldur-Benediktsson-1200x1200.png)
Haraldur Benediktsson tekur við starfi
bæjarstjóra Akraness á næstu vikum.