Fjögur ár liðin frá því að Sementsstrompurinn var felldur

Skagafréttir tóku þátt í því að skrá söguna á Akranesi þegar Sementsstrompurinn var felldur þann 22. mars 2019. 

Í gær voru því fjögur ár frá þessum atburði sem vakti mikla athygli. 

Góður hópur Skagamanna kom að því að safna efni í þetta myndband sem Kristinn Gauti Gunnarsson setti saman.

Þeir sem komu að þessu verkefni fyrir skagafrettir.is voru þeir Hjalti Sigurbjörnsson, Þórarinn Jónsson, Michal Mogila og Kristinn Gauti Gunnarsson. Eru þeim færðar þakkir fyrir framlagið.

Strompur Fellur – sagan öll frá ýmsum hliðum, gjörið svo vel.