Akranes tekur á móti allt að 80 flóttamönnum

Akraneskaupstaður tekur á móti allt að 80 flóttamönnum samkvæmt samningi sem undirritaður hefur verið milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og bæjaryfirvalda. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðs Íslands. 

Þetta er tíundi samningurinn sem gerður er um samræmda móttöku flóttafólks frá því í nóvember sl. Heildarfjöldi flóttafólks samkvæmt samningunum er orðinn um 3.000.

Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi. Markmiðið er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að.

„Við fögnum því að fá öflugan liðsauka á Skaganum og ég óska nýjum íbúum bæjarins gæfu og gengis,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

„Við látum okkar ekki eftir liggja á Akranesi enda samfélagsleg skylda okkar að taka vel á móti flóttafólki sem glímir við hörmungar í sínu heimalandi. Mikilvægt er að móttaka flóttafólks sé samræmd og að henni fylgi fjármagn líkt og þessi samningur kveður á um og sé unnin í þéttu samstarfi við ríkisvaldið. Þannig tryggjum við að vel takist til sem er að sjálfsögðu markmið okkar allra,“ segir Líf Lárusdóttir, formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar.