Guðrún Halla nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Norðuráls

Guðrún Halla Finnsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Norðuráli og mun m.a. leiða vinnu við raforkusamninga fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Guðrún Halla hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 2016, en þar áður starfaði hún hjá raforkufyrirtækinu Southern California Edison í Los Angeles. Guðrún Halla er með Bsc gráðu í aðgerðarannsóknum með áherslu á fjármálaverkfræði frá Columbia háskóla og Msc gráðu í rekstrarverkfræði frá University of Southern California.

„Við erum mjög ánægð með þá vinnu sem Guðrún Halla hefur unnið fyrir Norðurál, en hún hefur sinnt öllu sem viðkemur raforkusamningum fyrirtækisins, tekið þátt í að móta stefnu Norðuráls í raforkumálum og borið ábyrgð á losunarheimildum fyrir viðskiptakerfi ESB. Það er því engin betur til þess fallin að taka við þessari stöðu,“ segir 
Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls.

Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi.

Frá árinu 1997 hefur Norðurál framleitt ál og álblöndur samkvæmt þörfum viðskiptavina á ábyrgan, öruggan og samkeppnisfæran. Á hverju ári notar Norðurál endurnýjanlega raforku til að framleiða um 320.000 tonn af áli fyrir erlenda markaði. Norðurál var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins.