Heimildarmynd um söngleiki í Grundaskóla frumsýnd í kvöld

Söngleikjagerð hefur verið eitt af helstu einkennum Grundaskóla á Akranesi undanfarna tvo áratugi. 

Þar hafa Flosi Einarsson, Einar Viðarsson og Gunnar Sturla Hervarsson átt stærstan þátt í því að skrifa söguna og semja tónlistina. 

Nemendur skólans hafa síðan tekið við keflinu með frábærum sýningum þar sem að hæfileikar þeirra á ýmsum sviðum eru dregnir fram í dagsljósið. 

Á undanförnum misserum hafa nemendur í 10. bekk Grundaskóla unnið að gerð heimildarmyndar um söngleikina sem sýndir hafa verið í skólanum. 

Í myndinni er m.a fjallað um ferlið í heild sinni og markmiðin með þessum verkefnum, áhrifin á nemendur og starfsfólk, rifjað upp skemmtilegar minningar og velt fyrir sér mikilvægi listrænna verkefna í íslensku skólakerfi. 

Heimildarmyndin verður frumsýnd í kvöld, miðvikudaginn 26. apríl í Bíóhöllinni og er frumsýningin afrakstur mikillar vinnu síðan í byrjun árs. 

Fjöldi fólks kom að gerð myndarinnar, bæði nemendur og starfsfólk ásamt fyrrum nemendum skólans sem tóku þátt í söngleikjunum á einhvern hátt síðustu tvo áratugi. 

Fyrsti söngleikurinn sem sýndur var í Grundaskóla var Frelsi sýnt, en höfundar þess voru Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson. Einar Viðarsson bættist í hópinn þegar Hunangsflugur og villikettir komust á fjalirnar.

Draumaleit var svo samstarfsverkefni við skóla á Ítalíu, í Svþjóð og Tyrklandi. Sá söngleikur var sýndur í hverju landi fyrir sig og loks var sameiginleg sýning haldin í Stokkhólmi í desember 2007.

Enn fremur hafa litið dagsins ljós söngleikirnir Vítahringur (2009), Nornaveiðar (2012) og Úlfur, úlfur (2015).